Ritstjórn

Hvenær eru 13% bara 4,5%? Prósentutölusúpa dagsins
Fjölmargir hafa æft sig í prósentureikningi í dag eftir að hafa fylgst með kynningu á og lesið útfærslu ríkisstjórnarinnar í skuldamálum. Meðal þeirra er Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforingi sem á erfitt með að skilja málflutning stjórnarflokkanna. Vilhjálmur skrifar m.a.: „Í tillögum sérfræðingahópsins um skuldaleiðréttingar var gert ráð fyrir að verðtryggð húsnæðislán yrðu færð niður um fjárhæð […]

Palladómur: Andlit atvinnulífsfélagsfræðinnar – eða: frá Benidorm til Kasakstan
Sé fræðigreinin atvinnulífsfélagsfræði gúggluð dúkka ekki upp ýkja margar síður. Þær eru eiginlega frekar fáar. Svo allrar nákvæmni sé gætt eru þær 154. Til samanburðar má geta þess að leitarorðið hundasálfræði skilar 417 niðurstöðum en snákaolíusölumaður aðeins 31. Atvinnulífsfélagsfræði er sumsé einhverstaðar mitt á milli snákaolíusölumennsku og hundasálfræði hvað vinsældir varðar. Það sem vekur kannski […]

Tryggvi ætlar að sækja um lækkun – Árni stórtapar á Helguvík
Tryggvi Þór Herbertsson, verkefnastjóri ríkisstjórnarinnar í skuldamálum, ætlar sjálfur að sækja um skuldalækkun í samræmi við tillögur sem kynntar voru í nóvember. Þetta sagði hann í samtali við morgunútvarp Rásar 2 í morgun. Tryggvi sagði betri fjárfestingu og öruggari fjárfestingu ekki bjóðast enda gæti „ávöxtunin“ verið allt að 40 prósent. Fréttablaðið greinir frá því að […]

Frosti fær kaldar kveðjur: Er enginn ánægður með þetta?
„Er enginn ánægður með þetta?“ spurði Frosti Sigurjónsson alþingismaður eftir viðbrögð við facebook-færslu þar sem hann fagnar því að skuldafrumvörp ríkisstjórnarinnar séu komin til umfjöllunar í þinginu. „Góðar fréttir! Í dag var leiðréttingarfrumvörpum ríkisstjórnarinnar dreift á Alþingi. Aðgerðirnar munu ná til allt að 100 þúsund heimila og heildarumfang leiðréttingarinnar verður allt að 150 milljarðar,“ skrifaði […]

Úr ráðuneytinu í fótboltann í Nashville: Halla skrifar heim
Halla Gunnarsdóttir, sem var aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra síðastliðið kjörtímabil, flutti fyrir nokkrum mánuðum til Nashville í Tennessee. Í sendibréfaröð í Herðubreið, sem hún kallar „Kæra Ísland,“ lýsir Halla lífinu þar ytra fyrir löndum sínum og birtist fyrsta bréfið í dag. Þar kemur meðal annars fram að eftir ótal atvinnuumsóknir varð niðurstaðan er hún er […]

Öflugur hópur penna á Herðubreið
Á nýjum vef Herðubreiðar er lögð áhersla á vel skrifaðan texta. Í því skyni hefur vefurinn fengið til liðs við sig öflugan hóp penna sem birta munu pistla sína reglulega. Þeir eru (í stafrófsröð): Arnaldur Sigurðarson, Árni Múli Jónasson, Björgvin Valur Guðmundsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Björn Valur Gíslason, Davíð Þór Jónsson, Friðrik Þór Guðmundsson, G. […]

Hinn óframfærni
„Vel má vera að ég vanmeti hæfileika þína sem fréttmanns. En það er þá eingöngu vegna þess að þú hefur farið með þá eins og mannsmorð.“ Einar Steingrímsson, Opið bréf til Mikaels Torfasonar, 26. mars 2014

Houdini, hundrað árum seinna
„Í æfisögu Jóhannesar Jósefssonar glímukappa , sem Stefán Jónsson fréttamaður skráði og út kom 1964, segir frá kynnum okkar manns og brellumeistarans Houdini er þeir störfuðu í amerískum fjölleikahúsum. Houdini lét, að sjálfsögðu, ekkert uppi um það hvernig hann framkvæmdi töfrabrögð sín en benti á að máttur sefjunarinnar yrði seint ofmetinn og menn upplifðu yfirleitt […]

Séð hef ég köttinn syngja á bók
„[ESB] er samband sem byggt er á sáttmála um vígbúnað og hervæðingu.“ Haraldur Ólafsson, Heimssýn, mars 2014

Græni málmurinn
Gaman að segja frá því að á forsýningu Noah, sem nú er að hefjast, er aðeins boðið upp á gos í áldósum, og sérstaklega tekið fram að það sé vegna þess að þær séu umhverfisvænasti kosturinn. Ólafur Teitur Guðnason, facebook, 18. mars 2014

Stórfjölskyldan
Dettifoss er frændi minn, hann er partur af mér. Að fara að greiða fyrir aðgang að íslenskri náttúru er eins og að þurfa að borga sig inn til að heimsækja náin skyldmenni. Guðmundur Andri Thorsson, Fréttablaðið, 17. mars 2014

Hrynjan
Í útvarpsfréttum var talað um „úkraínskar hrynjur“. Ég held reyndar að þarlendir kalli myntina sína „grifní“ er þetta er samt flott nafn á gjaldmiðli; „íslensk hrynja“ hefði átt vel við síðustu áttatíu árin. Einar Kárason, facebook 16. mars 2014