Siðblinda
Á fundi framsóknarmanna á Höfn í Hornafirði um helgina vitnaði forsætisráðherra í rannsókn Guðbjartar Guðjónsdóttur á högum Íslendinga sem flust hafa til Noregs á síðastliðnum árum og ástæður þess að þeir fluttu. Það … sem vakti sérstaka athygli var hversu margir fóru vegna þess að það var orðið svo leiðinlegt og þrúgandi andrúmsloft á Íslandi. Umræðan væri svo neikvæð og illskeytt.“
Þá réðu strandkafteinar Framsóknarflokksins umræðunni. Hún var óþverraleg um flesta hluti og væri fróðlegt að orðtaka ræður þeirra frá þeim tíma. Það er þó ekki hlægt að fara fram á það að nokkur maður geri það. Það er niðurdrepandi.
Nú ræður Framsókn landinu. Og kvartar yfir umræðunni, sem þó er eins og Nýatestamentis-texti miðað við það sem var á þeim dögum sem ofangreind könnun nær til.
Þetta hafði forsæisráðherrann að segja flokksfélögum sínum um umræðu dagsins: „ … þótt umræða um þjóðfélagsmál hafi oft verið óbilgjörn á Íslandi hefur hún líklega sjaldan eða aldrei náð því marki sem við sjáum nú. Illmælgi, sleggjudómar og niðurrifstal hefur aldrei átt jafngreiða leið að almennri umræðu og nú. … Það getur haft raunveruleg og mjög neikvæð áhrif fyrir samfélagið.“
Ráðherrann fullyrti að hinir umtalsillu væru meðal annars þeir sem litu á fall fjármálakerfisins, bankahrunið, sem staðfestingu þess að hugmyndin um velferð á Íslandi hefði ekki gengið upp, Ísland væri og hefði alltaf verið vonlaust. „Nú, sex árum seinna óttast þeir hins vegar að draumurinn um vonlausa Ísland sé að fjara út. Viðbrögðin birtast oft sem furðuleg heift og því miður hefur þessi heift og neikvæðni fengið meiri athygli og verið meira ráðandi í umræðunni en eðlilegt, hvað þá æskilegt, getur talist.“
Hvaða fólk er þetta, Sigmundur? Þú verður að nafngreina það. Það jaðrar við að vera þjóðníðingar. Og hvað merkja orð þin, forsætisráðherra, um að þeir, þjóðníðingarnir, fái meira rúm í umræðunni en æskilegt getur talist? Ertu að boða ritskoðun á vegum innanríkisráðuneytisins? Er uppástunga borgarfulltrúi flokksins, Sveinbjargar Birnu um að svipta hælisleitendur friðhelgi einkalífs frá þér komin sem fyrsta skrefið gegn tjáningarfrelsinu?Eða var þetta bara grín, framsóknarkímni?