Valgerður Bjarnadóttir
Varist eftirlíkingar
Pólitík er fúlasta alvara. Viðfangsefni stjórnmálanna er þjóðfélagið. Í hvernig þjóðfélagi viljum við búa ? Þeir sem hafa skoðun á því eiga einnig að láta sig stjórnmál skipta. Allir eiga að nýta kosningaréttinn. Samfylkingin er klassískur jafnaðarmannaflokkur. Við viljum jöfnuð og öflugt velferðarkerfi. Við þurfum öflugt atvinnulíf til að standa undir þessum stefnumálum. Við þurfum […]
Land ríkra útgerðarmanna og fátækra barna
Það er næstum spurning hvort nokkru sé við umræðuna um þjóðfélgasmeinið að bæta eftir að hafa lesið grein Þórðar Snæs Júliussonar í Kjarnanum. Það er þó ekki svo að blaðagreinar breyti þjóðfélaginu sem við búum til og búum í. Hvaða álit sem fólk hefur á stjórnmálum og stjórnmálamönnum þá verður það svo enn um sinn […]
Um lögreglufræðin og gagnrýni mína
Aldeilis gáraði ég yfirborðið þegar ég gagnrýndi ákvörðun menntamálaráðherra um að fela Háskólanum á Akureyri lögreglunám á háskólastigi. Málsvarar okkar – Samfylkingarinnar – eiga að vera sanngjarnir, er sagt. Ég trúi því að sanngirnisvinkillinn sé vegna samlíkingar sem ég tók við flutning Fiskistofu. Kannski er það samt út af því sem fólk tók eftir þessu innleggi mínu […]
Breytum rétt
Varðhundar kerfisins og valdsins vilja helst engu breyta. Sumir þeirra átta sig á að því að krafan um breytingar er svo sterk að eitthvað verður undan að láta. Þegar þeir átta sig upphefst talið um hina víðtæku sátt. Aðrir eiga að nálgast þeirra sjónarmið og fallast á sem minnstar breytingar – það er víðtæk sátt. […]
Burt með sérhagsmunina
Við stöndum okkur vel í því jafnaðarmenn þessa dagana að skemmta andstæðingum okkar, það er svo sem ekkert nýtt. Þetta er einhver fjandi sem hefur fylgt flokkum á vinstri vængnum frá því að ég man eftir mér – og það er ansi langt er ég fús að viðurkenna. Á milli þess að við furðum okkur […]
Um stjórnarskrártillögurnar
Stundum er látið að því liggja að allir geti orðið sammála um stjórnarskrá. Sumir trúa því að hér hafi aldrei verið deilur um stjórnarskrá og stjórnskipan landsins. Það er mikill misskilningur, sem stafar kannski af því að stjórnarskráin var samþykkt svo til einróma þegar stjórnarskrá lýðveldisins var samþykkt 1944. Í aðdraganda lýðveldisstofnunarinnar var hins vegar […]
Jafnaðarmenn í klípu.
Það vakti athygli mína að þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur þá sem vilja kjósa Pírata eiga góða samleið með Sjálfstæðisflokknum.
Allt samofið – líka makríll og stöðugleiki
Það hefur verið orðað svo að í þrengingunum eftir hrun hafi makríllinn verið nokkurskonar lottóvinningur fyrir íslenskan efnahag. Nú vill ríkisstjórnin kvótasetja þennan fiskistofn og afhenda útgerðinni verðmæti sem hafa verið metin á allt að 170 milljörðum – og þó þeir væru ekki nema hundrað, þá breytir það engu. Úthluta á kvótanum til sex ára […]
Kerfisbreyting er það sem þarf
Það er ófremdarástand í þjóðfélaginu. BHM í verkfalli og verkföll á almennum vinnumarkaði vofa yfir. Listinn yfir kjaradeilur sem vísað hefur verið til Ríkissáttsemjara er langur. Landspítalinn starfar á 40 % afköstum og þinglýsingar liggja niðri. Barnabætur verða líklega ekki greiddar út á réttum tíma og ekki verður hægt að slátra kjúklingum. Menn jesúsa sig […]
Er hagnaður til hægri ?
Álitsgjafar, sumir að minnsta kosti, hafa átt gjöfula daga undanfarið. Skoðanakannanir sem sýna stjórnmálflokkana, alla nema Pírata…
Stórkarlarnir stíga fram
Einhverjum þykir það sennilega að bera í bakkafullan lækinn að skrifa um fjárlagafrumvarpið. Frumvarpið var samþykkt í vikunni og og nú höfum við fjárlög sem ekki verður breytt. Fjárlögin enduspegla stefnu ríkisstjórnarinnar og þess vegna verður umræða um þau seint úrelt, ef fólk veltir fyrir sér stjórnmálum yfirleitt. Það er rauður þráður í fjárlögunum. Gert […]
Skapillir ráðherrar
Eftir áralanga dvöl í útlöndum vakti það eftirtekt mína hve íslenskir stjórnmálamenn voru margir hverjir viðskotaillir. Sérstaklega voru þau sem sátu í ríkisstjórn frekar pirruð. Þetta var fyrir 13 árum. Þau höfðu flest setið lengi á ráðherrastólum og kannski ekki skrýtið að þau væru orðin bæði þreytt og úfin. Ekkert þeirra sem nú gegnir ráðherraembætti […]