Við þurfum hugsandi réttsýna leiðtoga sem taka sér ekki far með því viðurstyggilegasta í fari manneskjunnar
„Við lifum á hættulegum tímum. Við sjáum það þegar litið er yfir stjórnmálaþróun í Evrópu. Eitrið er farið að seitla upp á yfirborðið og það sums staðar hressilega. Eftirhrunsárin eru okkar eftirstríðsár. Óttinn og reiðin krauma undir og það er á ábyrgð stjórnmálamanna að íslenska þjóðin verði ekki fórnarlamb þeirra,“ skrifar Sigtryggur Magnason í grein í Herðubreið.
„Á tímum sem þessum þurfum við ekki sterka leiðtoga, við þurfum hugsandi réttsýna leiðtoga sem taka sér ekki far með því viðurstyggilegasta í fari manneskjunnar: hatrinu sem er knúið áfram af ótta og vanþekkingu.“
Sjá grein Sigtryggs í heild hér.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021