Það skiptir minnstu máli um hvað er samið. Gjaldmiðillinn er og verður versti óvinur launafólks
Baráttan fyrir stöðugum gjaldmiðli hefur verið þýðingarmesta og stærsta stéttabarátta á Íslandi allt frá því krónan var tekin úr sambandi við dönsku krónuna.
Þetta segir Guðmundur Gunnarsson fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambandsins í grein í Herðubreið.
Niðurstaða Guðmundar er sú, að minnstu skipti um hvað stendur í kjarasamningum ef ónýtur gjaldmiðill tekur allar kjarabætur jafnharðan til baka. Stjórnvöld hafi enga stefnu í peningamálum aðra en þá að mæra krónuna.
Ef krónan er svona góð, hvers vegna nota stóru fyrirtækin í sjávarútvegi og iðnaði evruna í uppgjörum sínum? spyr Guðmundur í grein sinni sem lesa má hér.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021