Segir útgerðarmenn í fiskvinnslu stunda bæði svindl og þjófnað með endurvigtun afla
„Afli upp úr bát er veginn á hafnarvoginni, sem er hin opinbera vigt. Síðan er honum ekið í verkunarhús. Þar er hann vigtaður aftur. Þar hefst svindlið. Tonnið af hafnarvigtinni er orðið að 750-900 kílóum eftir því hversu stórtækir rustarnir eru.“
Þetta fullyrðir Úlfar Þormóðsson rithöfundur í aðsendri grein í Herðubreið, þar sem hann lýsir meintu stórfelldu misferli útgerðarmanna, sem jafnframt reka fiskvinnslu.
Upplýsingar sínar segist Úlfar byggja á samtölum við marga sem þekkja til í greininni.
Úlfar heldur áfram:
„Af innvigtuðu kílóunum 750 eða hver sem þau eru, sýnir vinnslan gríðarlega góða nýtingu á aflanum, því nýtingarprósenta hússins er reiknuð út frá tonninu af hafnarvoginni. Þetta er fölsun. Sjómennirnir fá uppgert samkvæmt innvigtuninni því í vinnureglum er kveðið svo á að ef ágreiningur kemur upp um vigtun skuli innvigtun vinnslunnar standa. Þetta er þjófnaður.“
Sjá grein Úlfars hér.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021