Sænski rasistaflokkurinn gæti náð lykilstöðu eftir þingkosningar. Fylgi femínista ræður miklu
Um aðra helgi fara fram þingkosningar í Svíþjóð sem gætu markað tímamót þar í landi. Hvorug hinna hefðbundnu hægri og vinstri blokka er líkleg til að fá meiri hluta, en hinum rasíska flokki Svíþjóðardemókrata er spáð mikilli fylgisaukningu.
Hann gæti því komist í lykilaðstöðu í sænska þinginu eftir kosningar.
Þessu lýsir Jón Daníelsson í yfirgripsmikilli grein í Herðubreið.
Jón skrifar meðal annars:
„Það sem er spennandi fyrir þessar kosningar er aldrei þessu vant alls ekki munurinn á pólitísku fylkingunum tveimur. Sú rauðgræna er nefnilega mun stærri og allt stefnir í tiltölulega stóra vinstrisveiflu í kosningunum. Á hinn bóginn virðist ljóst að Svíþjóðardemókratarnir fái kringum 10% atkvæða og vinstrisveiflan þarf því að verða mjög stór til að rauðgrænu flokkarnir fái raunverulegan meirihluta.
Fá hvorug blokkin hreinan meirihluta í þinginu komast Svíþjóðardemókratar í algera lykilstöðu þegar í odda skerst milli fylkinga. Svo dæmi sé tekið gætu borgaraflokkarnir í stjórnarandstöðu lagt fram sitt eigið fjárlagafrumvarp og Svíþjóðardemókrötum væri þá í lófa lagið að greiða því atkvæði. Við slíkar aðstæður væri ný, rauðgræn ríkisstjórn auðvitað fallin.“
Jón bætir við:
„Frá sjónarmiði áhugamanna um sænsk stjórnmál er reyndar fjöldamargt fleira sem vekur athygli […]. Einna stærstu tíðindin eru þau að sænskir jafnaðarmenn virðast ekki ná 30% fylgi. Það verður þá minnsta fylgi flokksins síðan 1911. Samt stefnir allt í að Stefan Löfven verði forsætisráðherra.
Og það má líka kalla talsverð tíðindi ef Gudrun Schyman, stofnandi og helsta talskona Femínista kemst inn á þing, nú 68 ára að aldri.“
Grein Jón Daníelssonar má lesa hér til hliðar.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021