Ógeðfellda konan í sjónvarpinu. Ritdeila Jónanna fer í ýmsar áttir
Enn takast þeir á, nafnarnir Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður og Jón Ólafsson heimspekingur, á síðum Herðubreiðar.
Umfjöllunarefni þeirra eru einkum sú skoðun lögmannsins, að jafnan sé aðeins ein niðurstaða rétt í hverju dómsmáli, svo og að hve miklu leyti dómarar eigi og megi láta persónuleg viðhorf eða sjónarmið almennings hafa áhrif á störf sín. Einnig munurinn á sekt og sýknu fyrir dómi og að almenningsáliti.
En þótt viðfangsefnin séu alvarleg og tekist á með rökum ber stíllinn þá nafnana á ýmsar slóðir, eins og jafnan þegar góðir pennar eiga í hlut, nú síðast á fund ógeðfelldrar konu í sjónvarpsþætti.
Nýjasta innlegg Jóns Steinars er hér.
Upphafleg grein Jóns Ólafssonar er hér, svar Jóns Steinars hér.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021