Nýr flugvöllur í Hvassahrauni og nýtt sjúkrahús við Vífilsstaði um leið?
Fyrst svo vill til að við þurfum bæði nýjan flugvöll og nýtt aðalsjúkrahús á sama tíma, er í ágætu lagi að rísa upp úr stólunum, horfa í kringum sig og skoða valkostina.
Þetta segir Jón Daníelsson í athyglisverðri grein í Herðubreið, þar sem hann leggur út af niðurstöðum Rögnunefndarinnar í flugvallarmálum.
Jón hvetur til nýrrar nálgunar og spyr hvort ekki sé raunhæft að hafa nýjan flugvöll í Hvassahrauni og byggja um leið nýtt sjúkrahús við Vífilsstaði. Þannig yrði komið til móts við þarfir sjúkraflugsins, en kostirnir séu fleiri:
„Umfram allt er nóg landrými á báðum stöðum og þess vegna unnt að stækka og bæta við eftir þörfum a.m.k. út þessa öld og jafnvel lengur.
Á hinn bóginn er olnbogarými í grennd við miðborgina eiginlega ekki neitt. En með því að flytja þaðan bæði flugvöll og sjúkrahús, losnar verðmætasta byggingarland á Íslandi. Það er jafnvel ekki fjarstætt að hugsa sér að með sölu eða leigu lóða á þessu svæði mætti fara langt með að fjármagna bæði nýjan spítala og nýjan flugvöll.“
Sjá grein Jóns hér.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021