trusted online casino malaysia
Stefán Benediktsson 24/05/2014

Mótmæli gegn heitum potti

Sá tími kosningabaráttunnar er upp runninn sem vekur mesta andúð almennings á stjórnmálum.
Pólitíkusar hefja áróðurssöngva um eitthvað, bara eitthvað, í von um að kastljós fjölmiðlanna beinist að þeim í stað þess að skína á keppinautinn.
„Það á að skemma Laugardalinn“, „Það á að leggja hraðbraut um Árbæinn“, „Burt með Moskuna“,“Það á að þrengja Gullinbrú“, „Burt með múslima“, „Hættulegir hjólreiðamenn í ofsaakstri“. Það eina sem er fótur fyrir í þessum upphrópunum eru Laugardalur, Árbær, Moska, múslimi og hjólreiðamaður hitt er bara bull.
Einn frambjóðandi hóf meira að segja söfnun undirskrifta gegn heita pottinum í Vesturbæjarlauginni. Nokkrir skráðu sig.
Tveir stjórnmálaflokkar skera sig áberandi úr í þessum söng og halda úti sýnikennslu í ógeðfelldum, gamaldags og hallærislegu vinnubrögðum sem kjósendur eru, að því er virðist, að hafna, hátt og skýrt, í komandi kosningum.
Oddviti og efstu konur annars framboðsins halda sig þó enn frá groddalegum fullyrðingum, ósannindum og órökstuddum getgátum. Einum frambjóðanda ofbauð svo málflutningur oddvita síns flokks í mannréttindamálum að hann sagði sig frá framboðinu.
Öll framboð hljóta að velta fyrir sér ástæðum lélegs árangurs í kosningabaráttu, „been there, done that“.
Sannfærðir um að þeir „nái ekki í gegn“ byrja þeir oft að hrópa hærra og skreyta mál sitt með fullyrðingum sem skortir sannreynanlegar forsendur. Árangursleysi þessara vinnubragða kemur þeim síðan rosalega á óvart.
Pólitíkusar hljóta að hafa misst sjón, heyrn og lyktarskyn ef þeir eru ekki búnir að átta sig á að kjósendur sakna alls ekki þessara gamaldags baráttuaðferða í pólitík.
Kjósendur vilja að stjórnmálamenn sýni málefnum samfélagsins tilhlýðilega virðingu í umræðu og verki.
Kjósendur vilja að stjórnmálamenn lýsi sínum hugmyndum og lausnum í stað þess að eyða tíma sínum og áheyrenda í að úthrópa andstæðinginn á innsoginu og mála hryllingsmyndir af hugmyndum hans.
Kjósendur í Reykjavík virðast, að minnsta kosti, enn eina ferðina, vera að hafna gamaldags málflutningi og baráttuaðferðum. Hver er ekki að fatta það?

Latest posts by Stefán Benediktsson (see all)
Flokkun : Pistlar
2,009