Jón Steinar svarar fyrir sig: Jóni Ólafssyni er greinilega illa við mig. Varið ykkur á honum
„Ég er sýnilega í flokki manna sem hann er andsnúinn,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður í grein í Herðubreið. Hann á þar við nafna sinn Ólafsson, sem skrifaði í gær grein um bók lögmannsins, Í krafti sannfæringar.
Jón Steinar bætir við:
„Svo andsnúinn að hann sest niður og reynir að skrifa bók mína niður. Greinin er sýnilega ekki skrifuð í því skyni að fjalla af sanngirni um það sem í bókinni stendur. Því er öllu snúið á haus til að henti betur atlögu hans. Ekki veit ég með neinni vissu hver er ástæðan fyrir þessu framferði. Við nemendur heimspekiprófessorsins segi ég bara: Gætið ykkar á honum. Hann sveipar sig klæðum fræðimennsku til að koma höggi á mann sem honum er greinilega illa við. Ekki hafa slíkt framferði eftir honum þegar þið verðið stór; jafnvel jafnstór og hann telur sig orðinn.“
Grein Jón Steinars er hér og grein Jóns Ólafssonar hér.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021