trusted online casino malaysia
Sparkhéðinn 07/06/2015

Höddi bjargar deginum

Þegar við neyðumst til að horfa á leiðindi eins og úrslitaleik í meistaradeildinni kemur einn maður til bjargar: Höddi Magg.Hörður Magnússon

Um það bil sem ég var að sofna yfir Messi, Pogba, Suarez, Vidal, Pirlo, Neymar og Buffon var einn maður sem vakti mig alltaf: Höddi Magg.

Það er bara einn Höddi Magg:

„Það er öruggt að þessi bikar kemur ekki á…“

[Þögn. Fær sér sopa.]

„… silfurfæti.“

[Kyngir.]

„Er Juventus að gefa Barcelona…“

[Þögn. Fær sér líklega Pepsi.]

„… leik sem enginn átti von á að neinn myndi sjá?“

„Lichtsteiner er þreyttasti maður heimsfótboltans.“ Heimsfótboltans. Góð greining. Þreyttari en Blatter.

Og „gamla frúin hefur ekki sungið sitt síðasta.“ Og „líklega myndi aldrei neinn ekki velja hann í ellefu manna lið.“

Með það dottaði ég. Heyrði þó í svefnrofunum: „Þvílíkur leikur sem fótboltinn hefur gefið okkur, heiminum sem á svo miklu betra skilið, heiminum sem hefur samt gefið okkur Pirlo, sem fer í sumar til Kaliforníu til að sleikja tærnar.“

Líklega var mig að dreyma. Og þó. Mjög hugsanlega ekki.

Höddi er ástæðan fyrir því að við horfum á fótbolta. Eða eins og þulurinn sagði:

„Það er bara einn maður. Bara einn maður.“

[Þögn. Fær sér líklega sódavatn.]

„Sem er hann.“

[Þögn. Sofnar.]

Flokkun : Pistlar
1,371