Hinn nýi flokkur Benedikts er nú þegar til. Hann heitir Björt framtíð
Benedikt Jóhannesson og félagar þurfa ekki að stofna nýjan stjórnmálaflokk hægra megin við miðju og hliðhollan Evrópusambandinu. Hann er til nú þegar og heitir Björt framtíð.
Þetta skrifar Björn Valur Gíslason skipstjóri í grein í Herðubreið.
„Benedikt boðaði í ræðu sinni stofnun nýs stjórnmálaflokks hægramegin við miðju og hliðhollum ESB. Slíkur flokkur er reyndar til nú þegar en vilji brottfloginna sjálfstæðismanna virðist ekki stefna til þess að ganga til liðs við hann, heldur stofna nýjan.
Nýja pólitíska heimili flóttafólksins úr sjálfstæðisflokknum sýnist mér eigi að innrétta að öllu leyti eins og æskuheimilið nema að þar verður aukaherbergi fyrir Evrópusambandið. […]
Kannski endar það með því eftir allt sem á undan er gengið að mótmæli almennings verði til þess að stofnaður verður nýr og stór hægriflokkur?
En var einhver að biðja um það?“