Guðni og útgerðarmenn styðja tillögu – aðrir ekki
Af þeim tuttugu og fjórum umsögnum, sem utanríkismálanefnd hafa borist um tillögu utanríkisráðherra um að draga til baka aðildarumsókn að ESB, er mælt með samþykkt hennar í tveimur.
Þær eru frá Samtökum mólkur- og kjötvinnslufyrirtækja, sem Guðni Ágústsson veitir forystu, og Landssambandi íslenskra útgerðarmanna.
Frá þessu greinir á Evrópublogginu.
Aðrir hvetja til þess að tillagan verði dregin til baka, þar á meðal sveitarfélögin Reykjavík, Akureyri, Kópavogur og Sandgerði. Í sömu veru hefur bæjarstjórn Hafnarfjarðar ályktað.
Meðal einstaklinga, sem sent hafa nefndinni umsögn, eru Guðmundur Gunnarsson fv. formaður Rafiðnaðarsambandsins.
Hann birtir umsögn sína í Herðubreið og hana má lesa hér.
Umsagnirnar allar er hægt að finna hér.