Eitt hundrað ár í dag frá stofnun ASÍ og Alþýðuflokksins. Til hamingju. Hjúalögin eru þó enn í gildi. Og fjármagnið hefur tökin sem aldrei fyrr
Í dag, 12. mars, eru eitt hundrað ár síðan Alþýðusamband Íslands og Alþýðuflokkurinn voru stofnuð.
Það er löng saga og henni verða víða gerð skil, en Guðmundur Gunnarsson rafvirki með meiru stiklar á stóru í þeirri sögu í einkar fróðlegri grein um kjör og afarkosti vinnandi fólks allt fram til okkar daga.
Eða vissirðu að ef þú ræður þig í vinnu á sveitabæ, þá áttu rétt á hreinum rúmfötum á mánaðar fresti, samkvæmt lögum sem enn eru í gildi?
Þér er heldur ekki skylt að sofa í rúmi með ókunnnugu fólki.
Guðmundur Gunnarsson rekur hina glæstu fortíð Íslands hér.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021