trusted online casino malaysia
Esther Ösp Gunnarsdóttir 08/09/2014

Ikea

Það er búið að vera ansi mikið að gera hjá mér síðustu daga, svo mikið reyndar að ég opnaði ekki Ikea-bæklinginn fyrr en næstum viku eftir að hann barst inn á heimilið. Viku! Það er heil eilífð þegar brakandi ferskur Ikea-bæklingur er annars vegar. Á þessari viku hef ég séð glitta í allnokkrar bloggfærslur um allt þetta nýja og fína í listanum sem freistar. Það er auðvitað nóg af því eins og venjulega en það er líka margt svolítið undarlegt í listanum – líka eins og venjulega.

Forever alone? Mátti ekki splæsa í annan krakka á þessa mynd, svona fyrst það er verið að spila bílaleik fyrir tvo?

Forever alone? Mátti ekki splæsa í annan krakka á þessa mynd, svona fyrst það er verið að spila bílaleik fyrir tvo?

Finnst þér óskaplega gaman að taka selfie? Náðu þér þá í spegil sem lítur út eins og iPhone.

Finnst þér óskaplega gaman að taka selfie? Náðu þér þá í spegil sem lítur út eins og iPhone.

Húsbílar? Í þessi skipti sem ég hef íhugað að flytja í Ikea hafa útstillingarnar nú heillað mig meira en bílastæðin.

Húsbílar? Í þessi skipti sem ég hef íhugað að flytja í Ikea hafa útstillingarnar nú heillað mig meira en bílastæðin.

Þessi tók ekki af sér sólgleraugun fyrr en rétt áður en hann lagðist upp í. Hver býr eiginlega þarna? Bubbi?

Þessi tók ekki af sér sólgleraugun fyrr en rétt áður en hann lagðist upp í. Hver býr eiginlega þarna? Bubbi?

Latest posts by Esther Ösp Gunnarsdóttir (see all)
Flokkun : Pistlar
1,505