Veðrabrigði
Úr bréfi frá tryggingafélagi, sem skráð er í Kauphöll, skrifað 16. janúar 2017 og sent viðskiptamönnum sem tilkynning:
„Undanfarin ár hafa iðgjöld lögboðinna ökutækjatrygginga og bílrúðutrygginga … ekki dugað fyrir tjónum sem greiða þarf út úr tryggingunum. Af þeim sökum er því miður óhjákvæmilegt að hækka ökutækjatrygginguna um allt að 7% og bílrúðutrygginguna um allt að 30%.“
„Iðgjöld innbústrygginga … hafa ekki dugað fyrir tjónum sem greiða þarf út úr tryggingunum. Af þeim sökum er því miður óhjákvæmilegt að hækka … trygginguna …“ Iðgjöld ferðatrygginga hafa verið hækkuð til að mæta aukinni tjónatíðni.“
Úr Morgunblaðsfrétt 17. febrúar 2017:
„Tryggingafélögin þrjú sem skráð eru í Kauphöll skiluðu í gær ársuppgjörum sínum fyrir nýliðið ár og þá hefur Vörður einnig gefið út afkomutölur síðasta árs. Samanlagður hagnaður félaganna fjögurra á árinu 2016 nam 7,2 milljörðum króna.
Stjórnir skráðu félaganna hafa gefið út hverjar arðgreiðslutillögur þeirra verða og hljóða þær samanlagt upp á 5,1 milljarð. Ekki hefur verið tekin ákvörðun á vettvangi stjórnar Varðar um hversu há arðgreiðslutillaga verður lögð fyrir aðalfund félagsins.
Hagnaður Sjóvar í fyrra nam tæpum 2,7 milljörðum samanborið við 657 milljónir árið á undan. Hagnaður TM nam tæpum 2,6 milljörðum samanborið við rúma 2,8 milljarða árið á undan. Hagnaður VÍS nam 1.459 milljónum samanborið við 2.076 milljónir árið 2015. Vörður skilaði 487 milljóna hagnaði 2016 og reyndist það 26% minni hagnaður en árið á undan.“
Úr Morgunblaðsfrétt 17. febrúar 2017 af tryggingafélagi í Kauphöll:
„Góð afkoma skýrist af ágætri ávöxtun fjáreigna og betri afkomu af vátryggingarekstri en oft áður.“
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020