Úr Vigdísarsennu – brot
Eftir Baggalút
Ærr ertu Skalli
enn þó gjammar.
Næg er þín skuld og þín skömm.
Aum eru orð þín
engum þú gagnast.
Hvar hefur hár þitt glatast?
Steingrímur kvað:
Þegi þú Vigdís
þvílíka vitfirran
sem þér úr kjafti kemur. Karla og kvenna
er kúldrast hér inni
ert þú langtum leiðust.
Vigdís kvað:
Flá er þér tunga
flækist um tönn
hæfir ei helgum manni.
Kynlausi kommi
kjökraðu bara.
Valdlaus í vesælla liði.
Steingrímur kvað:
Þegi þú Vigdís,
þú ert fávitra
og meini blandin mjög.
Á leið þinni löngu
í loga þess neðra
megir þú þig Vigdís, væta.
Baggalútur, 15. maí 2014
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021