Undur
Hvílík undur væru það ekki að vakna
inní dag sem opnaðist hreinn og nýr
með vott og ángandi gras þarsem fyrr voru flög
og rykmóar sem þú röltir með feigð í beinum –
hvílík undur væru það ekki að vakna:
vita daginn svo glaðan hreinan og nýjan;
sjá hann brosa við öllu úngviði heimsins;
og börn þín hlypu glöð útí þetta gras.
Þorsteinn frá Hamri (1938)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021