Úkraína
Eins og oftar eru skiptar skoðanir um hvað heiti landsins merkir.
Eldri og útbreiddari tilgátan er ´land landamæranna´ eða ´land með mörg landamæri´ og má til sanns vegar færa.
Nýlega hafa fræðimenn þó hallast að merkingunni ´föðurland´ eða bara ´land, landsvæði´. Leiðinlegri skýringar eru varla til.
Um muninn á tungumálunum rússnesku og úkraínsku á Árni Bergmann þó líklega snjöllustu skýringuna: Þau eru eins og sitt hvor færeyskan.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021