Tvískinnungur um fjárhættuspil: Skyndibiti er leyfður, en úrvals veitingahús ekki
Ýmsar tegundir af fjárhættuspili eru leyfðar á Íslandi, happdrætti, bingó, getraunir, lottó, skafmiðar, spilakassar á börum… allt er þetta löglegt og leyfilegt. En casino er bannað.
Þetta skrifar Valgarður Guðjónsson í Herðubreið í tilefni af frumvarpi Willums Þórs Þórssonar um að að leyfa rekstur á því sem kallað er „Casino“ í útlöndum.
„Það má kannski líkja þessu við að leyfa skyndibitastaði en banna úrvals veitingahús.
Þetta er eiginlega tómt rugl.“
Valgarður skrifar líka:
„Þetta er ekkert hættulegt og þarna gildir enn gamli frasinn um hverjir koma óorði á „áfengið“. Auðvitað er spilafíkn þekkt vandamál og skelfilegt, en fyrir það fyrsta þá er það ekki næg ástæða til að setja bann á alla… ekki frekar en með áfengi. Þeir sem eru í vandræðum með spilafíkn, þeir finna sér leiðir. Það eru hinir sem bannið bitnar á.“
Pistil Valgarðs er hægt að lesa hér.