Þensla, nei
Til leigu er fjögurra herbergja íbúð við Lindargötu; verð 380 þúsund krónur á mánuði (fyrirframgreiðsla aðeins eitt ár). Þetta er ekki merki um þenslu.
Áformað er um að selja erlendis hlutabréf í Arion-banka; ekki ber að líta á það sem merki útrásar og þenslu.
Reiknað er með að ferðamenn verði 1 miljón og 700 þúsund í ár; það er aukning um tæp 39% frá síðasta ár og alls ekki merki um þenslu.
Erlendu verkafólki fjölgar vegna þess að Íslendingar eru ekki nógu margir til þess að fylla í störfin sem vinna þarf í landinu. Það er ekki merki um þenslu.
Verð á gistingu í Reykjavík hefur hækkað um um tæp 40% á síðustu þremur árum og herbergjanýting hótelanna var um og yfir 90% á árinu. Það er ekki merki um þenslu.
Íbúðaverð hækkar um allt að 10% á ári og er alls ekki merki um að það sé þensla á markaðinum.
Það er gott að búa í fortíðarlausu draumalandi veruleikafirrtra atvinnuspámanna. Þar er engin bóla. Engin þensla. Og þess vegna hvorki hætta á kreppu né hruni. Þar er ævarandi framsókn. Eða Framsókn.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020