Það er von
Hann er kominn aftur. Risinn upp. Hann Sigmundur. Tekinn til við að huga um nýliðna tíð og farinn að átta sig. Sér það og segir, að það hafi verið dómadagsvitleysa að ganga til kosninga í haust eins og gert var þrátt fyrir varnaðarorð frá honum. En það mátti einhverra hluta vegna ekki nefna neitt annað, „það var ekki vel séð. Sumir kannski sáu í þessu tækifæri fyrir sjálfa sig en aðrir voru held ég hræddir við að styggja einhverja æsingamenn,“ sagði hann í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis nú í dag, 14.12.´16. En lengra er hann ekki komin í bakþankanum. Hann er ekki búinn að sjá af hverju hann hrökklaðist frá völdum í stjórnarráðinu og af hverju hann tapaði formannskjörinu í flokknum. Ekki enn.
Þó ekki megi búast við of miklum bata í einu stökki er þó engin ástæða til þess að örvænta með framhaldið. Í sama viðtali og áður var nefnt má greina batamerki í hugsun mannsins. Lesið þetta eftir honum, orðrétt upp úr mbl.is sem segist hafa það úr útvarpsviðtalinu:
„Spurður að því hvor hann væri kominn til að vera á hinum pólitíska sviði, svaraði Sigmundur því til að hann hefði áður sagt að hann hygðist taka þátt í pólitík á meðan hann teldi sig geta gert gagn og á meðan þar biðu stór, ókláruð mál. „Og núna stöndum við frammi fyrir alveg gríðarlega stórum og mikilvægum ókláruðum málum,“ sagið hann. „Næsta ríkisstjórn mun þurfa að takast á við endurskipulagningu fjármálakerfisins og einkavæðingu eða sölu á gríðarlega miklum eignum. Og þeim eignum fylgja gífurleg völd.“ Sigmundur sagði bæði um að ræða bankana og stór eignasöfn, og margir vildu „koma þar að.“ Hann sagði ráðamenn þurfa að standast „gífurlegan þrýsting“ og láta ekki stjórnast af „einhverjum flokksheilindum.““
Sigmundur Davíð. Það er maðurinn. Hann ætlar að vera á vaktinni. Standa gegn gífurlegum þrýstingi þeirra sem vilja komast yfir sameiginlegar eigur okkar, standa gegn „einhverjum flokksheilindum“ svo að eigur okkar verði ekki vinavæddar. Þetta ætlar hann Sigmundur að gera fyrir okkur. Okkur „hin“. Það er von.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020