trusted online casino malaysia
Ritstjóri Herðubreiðar 14/05/2014

„Það er bara svo gleðilegt að sjá svona gott efni.“ – Hver er eiginlega þessi Baldvin Z?

„Eins og títt er eftir góða listneyslu sat maður hálf lamaður í sætinu að lokinni sýningu á meðan fólkið ruddist út í raunveruleikann, svona líka óþolinmótt að komast burt úr paradís listarinnar og heim í sitt hvítveggjaða hversdagshelvíti (aldrei skilið þennan æðibunugang) og keyrði síðan hálf skekinn heim, ólöglega hægt, hugsandi fallega til þessarar ungu hæfileikakynslóðar sem virðist geta allt í mynd og tónum og stendur sjálfsagt á öxlum einhverra en er að uppfylla óskir og drauma sem kraumað hafa í hérlendum listakreðsum áratugum saman. Vonarstræti

Það er eitthvað nýtt hér á ferð, einhver áður ókunn gæði. Ef Frikki Þór sá um þöglumyndatímabilið í íslenskri kvikmyndagerð og Balti gerði fyrstu talmyndirnar líður manni eins og hér séu nú að verða til fyrstu litmyndirnar. Allavega… Með Vonarstræti tekur kvikmyndagerðin okkar skrefið upp á danska planið.

Farið og sjáið Vonarstræti. Stórkostleg kvikmynd. En hver er þessi Baldvin Z?“

Hallgrímur Helgason dregur ekkert undan í hrifningu sinni á kvikmyndinni Vonarstræti í dómi í Herðubreið. Sjá dóminn í heild sinni hér.

Flokkun : Efst á baugi
1,415