Sýlindermaðurinn
Eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur
Kvöldið áðuren hann flytur inn
trúir hann mér fyrir því
að konur hafi oft skipt um sýlinder
til að varna honum inngöngu
og augu hans fyllast af tárum
og ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta
hann hafi dottið í það og þær haldið
að hann ætlaði að berja þær
og skipt um sýlinder með köldu blóði
hann komið að lokuðum dyrum
og tekur af mér loforð
að skipta aldrei um sýlinder, aldrei
ef allt hefði verið með felldu
hefði ég átt að rjúka heim og skipta um sýlinder
en ég ætlaði að fá mína sambúð
hvað sem það kostaði
þótt ég yrði læst úti eða inni
bara einhverstaðar.
Elísabet Kristín Jökulsdóttir (Enginn dans við Ufsaklett, 2014)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021