Svarti bletturinn
Þessa dagana erum við „litla“ þjóðin sem heimurinn hampar vegna velgengni í fótbolta suður í Frakklandi. Knattspyrnumennirnir og stuðningsmenn þeirra eiga heiðurinn.
Hér heima höfumst við annað að.
Við níðumst á lítilmagnanum.
Dóms- og kirkjumálaráðherra sigar lögreglu á landlausa hælisleitendur og gerir henni að flytja þá úr landi og út í óvissuna. „Litla“ þjóðin níðist á „litla“ fólkinu, þó að réttara sé að orða það svo að dóms og kirkjumálaráðherrann, reikningseigandi á Tortólu, lætur berja á fjárvana og landlausu fólki. Þessu til viðbótar hefur ráðherrann samþykkt að banna fréttamönnum og sjálfboðaliðum Rauða krossins að heimsækja hælisleitendur. Það á að halda þeim í einangrun, eins konar sóttkví. Ráðherrann lætur það heita að verið sé að vernda „firðhelgi einkalífs“ flóttafólksins.
Með framgöngu sinni hefur ráðherrann Ólöf Nordal klínt svörtum bletti á alla þjóðina.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020