Skóhljóðið
Eftir Steingerði Guðmundsdóttur
Þú heyrir það berast með blænum
brotna við eyra þér
skóhljóðið sem þú skelfist
og skuggann fölva ber.
Þú beiðst þess á blárri óttu
beiðst þess ein og hljóð.
Það dó á dimmri nóttu
dó – inn í þetta ljóð.
Steingerður Guðmundsdóttir (1912-1999)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021