Sigmundur Davíð sem pönkari
Kröfuhafinn var miðaldra
augun í honum voru blá.
Hann djönkaði sig með afleiðum
sagðist hafa stjórnað mér í hundrað ár.
Framsóknarmenn geymdu á deild
sem var sérhönnuð fyrir þá.
Það átti að setja Lilju í raflost
hann bauð mér að horfa á.
Pabbastrákar fá raflost…
VG-tíkurnar hvæstu
og sýndu í sér tennurnar.
Þær eltu mig til Úganda
sögðu: tími kominn á kosningar.
Ég sagði þeim að ég væri BESTUR!
að ég væri á leiðinni út í geim.
Þær skelltu mér með látum í gólfið
sögðu svo: þú ert einn af þeim.
Þórarinn Þórarinsson (tilbrigði við stef Bubba Morthens)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021