Sameinumst um að kjósa ekki Framsókn í Reykjavík
Hér í Nashville fylgjumst við hálfóttaslegin með umræðunni heima á Íslandi. Að því tilefni langar mig að koma þessu á framfæri: Sameinumst um að kjósa ekki Framsóknarflokkinn í Reykjavík í kosningunum á morgun. Leyfum þessari prufukeyrslu þeirra á að ala á andúð gegn hópi fólks til að ná sér í atkvæði ekki að ganga upp. Það er nóg af valmöguleikum í Reykjavík hvort sem þið hallist til hægri eða vinstri. Kjósið VG, Dögun, Bjarta Framtíð, Samfylkinguna, Pírata eða Sjálfstæðisflokkinn. Fólk í öllum þessum flokkum hefur tekið afstöðu með mannréttindum og gegn lágkúrulegum atkvæðaveiðum, þar á meðal þeirri hugmynd að setja mannréttindi lítils hóps í atkvæðagreiðslu.
Og þið framsóknarmenn sem hafið staðið upp og talað gegn hinni nýju stefnu flokksins í borginni, ég stend með ykkur, berjist gegn þessu og fyrir mannréttindum, leyfið þessum hópi ekki að ná tökum á flokknum ykkar, bæði Framsóknar vegna og Íslands vegna.
Kær kveðja frá Nashville,
Halla
- Sameinumst um að kjósa ekki Framsókn í Reykjavík - 29/05/2014
- Evrópa, prófessorinn og við - 02/05/2014
- Heimsókn að heiman, þing, fangelsi og íslenski þjóðsöngurinn - 24/04/2014