Réttið mér dansskóna
Eftir Unni Eiríksdóttur
Réttið mér dansskóna
eyrnahringana
gulldjásnið
hrópar konan yfir mannlausan salinn
réttið mér svört augu unga mannsins
og orðin
sem hann vill ekki segja
Unnur Eiríksdóttir (1921-1976)
- Fjárhúsið að sumri til og fleiri þankar - 29/12/2020
- Gamall húsgangur - 24/12/2020
- Magnþrungin sinfónía Elísabetar - 08/12/2020