Okkar eigin okrarar II
Tölur frá OECD benda til þess að Ísland sé dýrasti áfangastaður heims um þessar mundir. Verðlag á Íslandi er 28 prósent hærra en annars staðar á Norðurlöndunum að meðaltali.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íslandsbanka um ferðaþjónustuna á Íslandi sem gefin var út í dag. Þar segir að af þeim löndum sem gögn OECD nái til, sé Ísland það dýrasta.
„Þá er verðlag á Íslandi á bilinu 1,5 til 2 sinnum hærra en í Frakklandi, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Ítalíu, Spáni og Portúgal sem eru á meðal vinsælustu áfangastaða heims fyrir ferðamenn,“ segir í skýrslunni. „Það er því ljóst að verðlagið hér er það hæsta á meðal OECD-ríkja og eflaust fá ríki á alþjóðavísu sem búa yfir hærra verðlagi.“
(Úr visi.is klukkan 11:35 þann 11. 04.2018.)
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020