Nýr sprellari
Þessa dagana er umræðan í þjóðlífinu eins og best gerist í góðu partíi og ekkert lát á gríninu. Þegar einn sprellari lýkur sögu tekur annar við og barnar hana. Og glaumurinn eykst. Eftir að fræðimaður á Veðurstofunni og forstjóri Kauphallarinnar höfðu glatt þjóðina með kímni sinni fyrstu fjóra daga ársins steig þriðji grínarinn fram á sviðið, Heiðar (Már) Guðjónsson, hagfræðingur. Hann hefur, einn fárra, kankast á við sjálfan sig; var skírður Már að millinafni, en lét afmá það á Hagstofunni sumarið 2015 meðal annars vegna þess að Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri „ hefur svona lagt mig í einelti þannig að það er leiðinlegra að líkjast Má heldur en ekki“, hafði Nútíminn eftir honum af tilefninu.
Kjarninn birti grein eftir Hreiðar (Má) í dag, 05.01.´17. Þar er hann að gamna sér við að endurskrifa mannkynssöguna og fjallar um Marxismann. Hann botnar þó ekkert í honum en tætir hann eigi að síður í sig og úr verður mikið sprell. Svo lýsir hann stöðu margra höfuðmála og fullyrðir að aldrei hafi mannkyninu vegnað betur og að aldrei hafi fátækt og hungur í heiminum verið minna en nú og bendir á „að plánetan hafi ekki verið grænni um árhundraða skeið enda leiði aukinn útblástur koltvísýrings til þess að aukin næring skapast fyrir plöntur. Meiri gróandi hefur gert óttann um að skógar séu á undanhaldi að engu“. Þetta er í samræmi við þá glettni sem hann lét hafa eftir sér við Nútímann í október árið 2010: Kvaðst vera „bjartsýnn á framtíð Íslands og telur tækifæri liggja í hlýnun jarðar. Hann segir Ísland vera í öfundsverðri stöðu í framtíðinni, út í hafi, með nóg af æti, vatni og háhita.“ Þessa dagana er sprellarinn að bora eftir olíu norður í höfunum.
Vegna menntunar grínarans er rétt að draga fram þann þátt í sprellinu þar sem hann sem fjallar um gengismál. Fyrir skömmu taldi hann krónuna svo veika að það ætti að henda henni; nú finnst honum hún svo sterk að það verði að fella hana.
Þeim sem finnst maðurinn áhugaverður og þurfa meira grín í skammdeginu geta kynnst honum nánar á Wikipediu.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020