Nektin
af Hjörleifshöfða þegar þokunni léttir
Eftir Véstein Lúðvíksson
Hér eru flíkur í fataskápnum
ekki margar, eiginlega
bara ein gleraugu, svo ný
að nú sést hvorki haf né land
ekki heldur haf og land –
aðeins dansandi hafland
sem hverfur í sviðið jafnharðan
Og sviðið, það er engu klætt
Vésteinn Lúðvíksson
(Kisan Leonardó og önnur ljóð, Mál og menning 2014)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021