trusted online casino malaysia
Ritstjóri Herðubreiðar 21/06/2014

Næturljóð úr Fjörðum

Eftir Böðvar GuðmundssonBöðvar Guðmundsson

Yfir í Fjörðum allt er hljótt.

Eyddur hver bær hver þekja fallin.

Kroppar þar gras í grænni tótt

gimbill um ljósa sumarnótt.

Ókleifum fjöllum yfirskyggð

ein er þar huldufólksbyggð.

 

Bátur í vör með brostna rá

bíður þar sinna endaloka

lagði hann forðum landi frá

leiðina til þín um vötnin blá.

Aldrei mun honum ástin mín

áleiðis róið til þín.

 

Fetar þar létt um fífusund

folaldið sem í vor var alið

aldrei ber það um óttustund

ástina mína á vinafund.

 

Grær yfir leiði grær um stein

gröfin er týnd og kirkjan brotin.

Grasrótin mjúka græn og hrein

grær yfir huldufólksins bein

grær yfir allt sem áður var

ástin mín hvílir nú þar.

Böðvar Guðmundsson

Flokkun : Ljóðið
1,364