Morgunbæn góða mannsins
Himneski faðir!
Ég hef fylgst með og skrifað um utanríkis- og öryggismál í um það bil hálfa öld og aldrei orðið vitni að öðru eins og þessari lausung Donalds Trumps sem er í hróplegri andstöðu við festuna sem birtist í skoðunum þeirra sem hann hefur valið í stjórn sína til að fara með utanríkis- og varnarmál. Hertu hann, drottinn, leiddu honum fyrir sjónir gildi NATO og staðfestunnar; vísaðu honum inn á veg kærleikans.
Drottinn!
Margsinnis hef ég bent löndum mínum á hættuna af Rússum og þeim öðrum þjóðum sem áður byggðu löndin austan við Járntjaldið. Þrátt fyrir það koma núorðið hingað til lands, á miðvikudögum og sunnudögum, flugvélar Wizz-air frá Búdapest. Um borð í þeim eru hælisleitendur frá Makedóníu og Albaníu. Þetta fólk er hingað komið í þríþættum tilgangi:
- Að dveljast hér að minnsta kosti í þrjá mánuði á kostnað ríkisins.
- Að stunda svarta vinnu.
- Að njóta íslenskrar heilbrigðisþjónustu, sem þeir vita að er á heimsmælikvarða.
Faðir!
Langtímatilgangur þessa fólks er augljós. Það ætlar að yfirtaka íslenskt samfélag. Þess vegna bið ég þig, sem átt öll ráð, af heitu hjarta að þú hrindir þessum árásum erlendra óþjóða á land vort og þjóð, á okkar stórkostlega almannatryggingakerfi og á íslenska menntun og menningu sem öll er grundvölluð á þínum boðum og kristnum gildum sonar þíns. Frelsa oss frá öllu illu, drottinn, og blessaðu sjúka og sorgmædda. Verði þinn vilji drottinn, sonar þíns og hins heilaga anda, amen.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020