Milli mín og þín
Eftir Halldóru B. Björnsson
Vildi ég vík og haf
vildi ég reginfjöll
vildi ég bil breitt
vildi ég varg og ljón
vita @ vegi
milli mín og þín.
Þægara myndi þ@
vík að vaða
fjöll að flytja
brýr að brúa
ljón að leggja
en stíga fetið
milli mín og þín.
Halldóra B. Björnsson (1907-1968)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021