Mánudagsmorgunn
Sit með súrmjólkina mína
og kaffibollann
að venju
stelpan borðar seríosið sitt
í útvarpinu morgunfréttir
að venju
velta inn á eldhúsborðið
afhöggvin höfuð
saklausra karla, kvenna
og barna
blóðugur hnífur stendur
í mynstruðum vaxdúknum
neyðaróp glymja í eyrum okkar
lögreglan er að berja á
mótmælendum með kylfum
sprauta piparúða í vit þess
– gættu þess að gleyma ekki lýsinu
elskan mín
Vilborg Davíðsdóttir
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021