trusted online casino malaysia
Úlfar Þormóðsson 03/05/2018

Mannvitsbrekkur

Kosningar nálgast. Þá láta spakvitringarnir í sér heyra. Einn er Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann birti grein í Morgunblaðinu í gær. Hún fjallaði um – átti að fjalla um – fjármál Reykjavíkurborgar. Í geininni eru margir tölustafir og mikið reiknað. Nafnleysingi (Óli Björn, Björn Bjarnason, Davíð Oddsson, Eyþór Arnalds, eigandi blaðsins eða einhver annar óframfærinn) birti í dag samantekt, valda hápunkta, úr grein Óla Björns í Staksteinum sama blaðs og því dreift óumbeðið í hús. Þar er þessi þrungna málsgrein um skuldaaukningu Reykjavíkurborgar:

Þetta gerir hækkun skulda um rúmar 22 miljónir króna á dag og eina miljón króna á hverja fjölskyldu.

Rétt er að undirstrika að Óli Björn er enginn aukvisi í stærðfræði. Hann er formaður í efnahags- og viðskiptanefnd alþingis. Hæstvirtur.

Önnur mannvitbrekka lét ljós sitt skína og birtir grein í Fréttablaðinu í dag, 03.05.´18. Það er frambjóðandi til embættis borgarstjóra, tónlistamaður, viðskiptajöfur, bílstjóri, Eyþór Arnalds. Hann skrifar um borgarmál. Og ekki af léttúð. Lesið þetta:

Það er alltaf varasamt að leyfa fyrstu byggingar. Það er alltaf hætta á að svo komi fleiri á eftir.

Hann þarf ekki að örvænta hann Eyþór hvernig sem kosningarnar fara. Það er þörf fyrir háspeki. Víða. Jafnvel hjá Félagi atvinnurekenda.

Úlfar Þormóðsson
Latest posts by Úlfar Þormóðsson (see all)
Flokkun : Efst á baugi
1,275