Leyndarmál
Eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur
Ég bý yfir leyndarmáli sem ég fel vandlega
líka fyrir þér vinur minn.
Þetta leyndarmál er sannleikurinn
um lífið og mig.
Ég hef grandskoðað óttann í sál minni
og rakið lygina frá rótum.
Það er ekki efi sem kvelur mig
heldur vissan um að hafa brugðist.
Ég held áfram að látast
fyrir þér vinur minn
því ég er hrædd.
Vinur farðu ekki,
skildu mig ekki eina eftir
þegar sumarið er liðið
og kominn uppskerutími.
Vilborg Dagbjartsdóttir
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021