Lettland
Lettland (sérheiti) = Þetta er óttalegt vandræðaorð.
Engin almennileg skýring er á nafngiftinni. Í latínu hétu Lettar Lethi eða Letthigalli og voru einn af nokkrum baltneskum þjóðflokkum sem enginn veit hvaðan komu, en áttu heima við suðaustanvert Eystrasalt.
Seinni hluti latneska heitisins, -galli, vísaði ekki bara til Galla í Frakklandi, heldur einnig almennt til villimanna í norðurhluta Evrópu. Annar skyldur þjóðflokkur við Eystrasaltið var kallaður semigalli.
Um fyrri hlutann er allt óljóst. Letum í latínu getur merkt ofbeldi, pyntingar og dauða, en engar heimildir benda til þess að sú merking eigi við vini okkar í Lettlandi.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021