Lesandabréf
ég
almennur neytandi stjórnmála
færi hér með þakkir
framámönnum þessarar þjóðar
fyrir að hafa svo dyggilega í heiðri
þau spöku orð kanans þess efnis
að aldrei tapi nokkur á því
að vanmeta greind almennings
einnig vil ég bera fram þá frómu ósk
að héreftir ljúki sérhver skörungur máli sínu
á að minnstakosti einni snoturri mótsögn
eftir það er mér leiðindalaust
þó hann sanni hvaðeina endanlega
með tilvitnunum í þjóðskáldin
Sigfús Bjartmarsson
(Hlýja skugganna, Mál og menning 1985)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021