Leki í DV innan úr ríkisstjórn skapaði þrýsting sem leiddi til neyðarfundar þingsins á sunnudagskvöldi
Leki á trúnaðarupplýsingum frá ríkisstjórninni varð til þess að erlendir kröfuhafar undirbjuggu aðgerðir til að komast með fjármuni úr landi framhjá gjaldeyrishöftum.
Þetta fullyrti Steingrímur J. Sigfússon í ræðu á fordæmalausum þingfundi í kvöld, sunnudagskvöld. Steingrímur vitnaði til orða fulltrúa seðlabankans á fundi efnahags- og viðskiptanefndar, en þeir sögðu bankann hafa fundið fyrir „þrýstingi“ um helgina og meginástæða hans væri leki á upplýsingum um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í gjaldeyrismálum.
DV birti á föstudag frétt um aðgerðirnar, meðal annars um umfang skatts sem ætlunin er að leggja á þrotabú gömlu bankanna. Þessar upplýsingar höfðu þá ekki verið kynntar annars staðar en í ríkissjórninni, en lekinn á þeim varð til þess að kröfuhafar hugsuðu sér til hreyfings.
Alþingi samþykkti í kvöld lagafrumvarp sem herða gjaldeyrishöftin enn til að koma í veg fyrir fyrirætlanir kröfuhafa.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021