Landspítalinn há eff
Í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu er lagt til að framkvæmdum við nýjan Landspítala verði frestað um 2-3 ár og honum fundinn annar staðar. Skýrsluhöfundar telja að skynsamlegt sé að nýta frestinn til þess að „kanna fýsileika nýrrar staðsetningar“. Það eigi ekki að tefja málið.
Auk tafanna vilja skýrsluhöfundarnir að skoðað verði „að einkavæða rekstur ákveðinni þjónustuþátta Landspítalans eins og rannsókna, öldrunarþjónustu, þvottahúss og eldhúss. Einnig að boðinn berði út bygging og rekstur dag- og göngudeilda og heilsugæslustöðvar. Þá verði sá möguleiki skoðaður að stofna opinbert hlutafélag utan um byggingar og tæki sjúkrahússins sem áframleigði þau til þess og hugsanlegra annarra heilbrigðisaðila.“
Þá er það ljóst: Þetta er herútboð. Það stendur til að tefja bygginu nýs Landspítala eins og unnt er svo að tími gefist til þess að hlutafélagavæða heilbrigðisþjónustuna í landinu. Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu telja tíma til kominn að hafa eitthvað upp úr slysförum og sjúkdómum landa sinna.
Um þetta má ærið margt segja. Hér skal þó aðeins bent á að sum bæjarfélög fóru þá leið að selja eignir sínar og leigja þær af nýjum eigendum og hlutafélagavæða aðrar líkt og nú er gerð tillaga um að gert verði við eignir Landspítalans. Reykjanesbær seldi allt sem hann átti nema klóaklagnir -það vildi enginn kaupa þær- og Helguvíkurhöfn en hún seldist ekki vegna þess að hún var ofurskuldum vafin. Þetta var gert í sparnaðar- og hagræðingarskyni með hag bæjarbúa að leiðarljósi að sagt var. Innan skamms kom í ljós að það var blekking. Nokkrir einstaklingar græddu feitt á þessu en bæjarfélagið tapaði öllu sínu og riðar nú á barmi gjaldþrots. Á þetta ber nú að líta sem víti til varnaðar.
Svo vaknar þessi spurning: Af hverju ráðast Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu ekki í byggingu alhliða sjúkrahúss, fjármagna það sjálf og reka það án afskipta hins opinbera og án þess að fá greitt frá Tryggingastofnun fyrir unnin læknaverk og hleypa sér með bravör út í samkeppni við spítala landsins? Þannig gætu ástmenn einkarekstursins sýnt fram á yfirburði hans fram yfir ríkisrekna heilbrigðisþjónustu. Yrðu stuðningsmenn frjálshyggjunnar, sem trúlega þurfa læknis við endrum og eins, ekki hamingjusamir þegar þeir fengju sendan reikning upp á 500 þúsund krónur fyrir samsvarandi aðgerð og nágranni þeirra fékk gerða á sér án teljandi útgjalda hjá vel búnum Landspítala sem rekinn væri af velviljuðu ríkisvaldi?
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020