Landamærin
Eftir Auði Lilju Erlingsdóttur
Landamærin
Eftir á að hyggja
var ef til vill ekki
eðlilegt
að reyna að nálgast hann
með því að tipla á tánum
á milli jarðsprengnanna
sem hann lagði jafn óðum
á milli okkar.
Óhjákvæmilega
komst ég ekki ósærð
á leiðarenda.
Óhjákvæmilega
varði hann landamæri sín
af enn meiri hörku
Auður Lilja Erlingsdóttir (2015)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021