Kvöldljóð í mars
Birtan roðnar ívið
á fótumtroðnum snjó útí garði hjá mér.
Jafndægur á vori, veraldarundur.
(Þú sprettharða tímans tönn)
Ég tel klukkustundir á fingrunum til staðfestingar.
Stendur heima. Nú er jafn bjart og það er dimmt.
Ó réttláta úthlutun ljóssins! Ég vakna til þess. Til þess!
Og úrskurða andlát skammdegis.
Í andakt
Ég trúi á upprisu grasanna og eilífan sprett.
Steinunn Sigurðardóttir (Veðratími)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021