Kvíðbogi
Ég hef spennt kvíðboga minn of hátt
nú brestur strengurinn
og endarnir slá mig í augun
blinda mig um stund
En þú elskar mig
Úr hári þínu snýrð þú mér
nýjan bogastreng
og enn hef ég kvíðboga minn á loft
í eilífri vörn
Stefán Bogi Sveinsson (Brennur, júlí 2014)
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021