Kvaðning
Kannist þið ekki við þetta trix?
“Of hár launakostnaður íslenskra fyrirtækja mun á endanum bitna harkalega á samkeppnishæfni landsins og sífellt fleiri dæmi eru um að fyrirtæki verði undir í samkeppni um verkefni á erlendum vettvangi vegna óhagstærða ytri rekstrarskilyrða. Þetta segir Ásta Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands í grein sem birt er í Viðskipta Mogganum í dag.
Bendir hún m.a. á að nýlega hafi íslensk verkfræðistofa verið undirboðin af norskri verkfræðistofu. „Þegar stjórnendur grennsluðust fyrir um hvernig á þessu gæti staðið þar sem launakostnaður í Noregi er hár kom á daginn að meirihluti starfsmannanna er í Austur-Evrópu, þar sem laun eru umtalsvert lægri, en verkstjórnunin fer fram í Noregi.“
Segir Ásta þetta dæmi sýna að veruleg hætta sé á því að verðmæt og vel launuð störf, jafnvel hátæknistörf muni smám saman flytjast úr landi ef ekki verði gætt að samkeppnishæfni landsins.”
Vegna þess að áfergjan sefur aldrei hefur þetta gamla trix verið dregið fram. Þetta er sama margræða herhvötin og Viðskiptaráð lét básúna árin fyrir hrun. Þá voru það bankarnir og hinir snjöllu bankamenn, nú tæknimenn og verkfræðistofur. Það er því full ástæða til þess að hvetja stjórnvöld til þess að halda vöku sinni vilji þau forðast nýtt efnahagslegt hrun.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020