Jákvæð tíðindi
Kennitöluflakkarar hafa unnið mikið tjón á samfélaginu. Margir hafa liðið fyrir gerðir þeirra; fyrirtæki, ríkissjóður, stéttarfélög, lífeyrissjóðir, launamenn og konur.
Það voru því ánægjuleg tíðindi sem sögð voru í kvöldfréttum Útvarpsins í dag, 20.06.´17, er skýrt var frá því að Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hefðu tekið höndum saman í baráttu gegn kennitöluflakki. Í dag kynntu þessi samtök tillögur í átta liðum. Þeim er ætlað að sporna gegn þessari sviksemi. Í tillögunum felst meðal annars, að þeim sem verði uppvísir að kennitöluflakki verði bannað að reka og eiga hlutafélög og einkahlutafélög í allt að þrjú ár. Samtökin munu kynna tillögur sínar fyrir stjórnvöldum og verður vart öðru trúað en þau taki þeim fagnandi og hrinda þeim fram.
Og talandi um jákvæð tíðindi. Klukkan 20:30 var sýndur í Sjónvarpinu þátturinn Veröld Ginu. Sænsk kona, Gina Dirawi fór til Rúanda og skýrði frá afar merku uppbyggingastarfi sem þar hefur farið fram í kjölfar þjóðarmorðs eins ættbálks á öðrum. Þar var sýnt fram á að jákvæðir þættir mannskepnunnar geta haft betur en en þeir neikvæðu sé að þeim hlúð. Þetta er mannbætandi þáttur.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020