trusted online casino malaysia
Ritstjóri Herðubreiðar 13/11/2016

Í gestavinnustofu á Siglufirði

Í gestavinnustofu á SiglufirðiHallgrímur Helgason
gömlu tvílyftu timburhúsi
á miðri eyri

Einn í tvöföldu rúmi
með eina sæng
en tvíbreitt lak

Hún hringar sig á auða helmingnum
ýmist svört hrúga með hvíta blesu
eða flatur fugl á ís

Þegar ég legg frá mér bókina
og slekk ljósið
laumar hún hvítri löpp í lófa
og við leiðumst inn í landið
þar sem dýr og menn eru blóm
sem raula saman drykkjuvísur
eftir Dalí

Hallgrímur Helgason, Lukka (JPV 2016)

Flokkun : Ljóðið
1,439