Hvað er þetta með sérstakan saksóknara og símhleranir? Söguleg upprifjun á sérkennilegri rannsókn
Sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Hauksson, varð fyrst þjóðkunnur þegar honum var falið að rannsaka meintar hleranir á símum Jóns Baldvins Hannibalssonar og Árna Páls Árnasonar.
Hann var þá sýslumaður á Akranesi.
Í báðum tilvikum krafðist hann þess að þeir gæfu upp nöfn heimildarmanna sinna. Þeir neituðu og sýslumaðurinn lét rannsókn niður falla án niðurstöðu.
Karl Th. Birgisson rifjar þessi mál upp í grein og birtir þar kafla úr yfirheyrslu sem fram fór af þessu tilefni. Þar eru meðal annars þessi orðaskipti:
„ÁPÁ: Ég skil ekki þessa spurningu. Mér finnst þetta alveg furðuleg spurning. Ég skil hana ekki.
ÓÞH: Nei, það sem ég kannski er að segja er það…
ÁPÁ: Þú ert óbeint að gefa í skyn án þess að þora að segja það að ég hafi verið að ljúga þessu til þess að fá athygli í prófkjörinu.
ÓÞH: Spurningin er eiginlega þannig.“
Grein Karls má lesa hér.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021